Keldan KYC: Skilvirkt kerfi fyrir áreiðanleikakannanir og áhættumat
Keldan hefur sett í loftið nýtt og betrumbætt KYC kerfi til utanumhalds og framkvæmdar áreiðanleikakannana. Kerfið er í senn einfalt og skilvirkt og stenst þau lög sem tilkynningarskyldir aðilar falla undir um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Góð heildstæð yfirsýn á viðskiptavinum
- Áreiðanleikakannanir á lögaðilum og einstaklingum.
- Áreiðanleikakannanir á erlendum aðilum.
- Gildandi skráning með raunverulegum eigendum, sótt sjálfkrafa frá Hlutafélagaskrá.
- Sjálfvirk leit á íslenskum PEP lista Keldunnar.
- Sjálfvirk leit á móti alþjóðlegum válistum.
- Ríkisfang einstaklinga keyrt á móti áhættu- og ósamvinnuþýðum ríkjum.
- Spurningalisti sendur út og svör við spurningalista móttekin.
- Rafræn auðkenning viðskiptavina.
- Skráning áhættumats handvirkt eða sjálfvirkt.
- Skjöl hengd við hverja áreiðanleikakönnun (aukin áreiðanleikakönnun).
- Sjálfvirk áminning þegar ákveðinn tími er liðinn frá síðustu könnun.
- Viðvarandi eftirlit með stöðu viðskiptavina.
Skjáskot úr Keldan KYC:
Kerfið gerir notendum kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á einfaldan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum, lögaðilum og einstaklingum. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.
Hafðu samband ef þú vilt fá aðgang að Keldan KYC eða til að panta kynningu á kerfinu.


