Safnaðu áskriftum í hluta- og skuldabréfaútboð á einfaldan hátt.

Öflugt útboðskerfi fyrir fjármála- markaðinn
Stór hlutafjárútboð þurfa öflug skráningarkerfi sem standast ítrustu kröfur.
Með IPO.is geta fjármálafyrirtæki stillt upp hlutafjár- og skuldabréfa- útboðum og safnað áskriftum frá almenningi og fagaðilum á netinu.
Takmörkun áskrifenda
Með IPO.is er hægt að skilgreina lista yfir þá sem ekki mega taka þátt í útboði, til dæmis innherja. Skilgreina má slíka lista með ýmsum hætti, til dæmis hvað varðar tímasetningu áskriftarskráningar.
Fjöldaskráning áskrifta
Í stórum útboðum er nauðsynlegt að geta boðið fjöldaskráningu. Kerfi IPO.is gerir sjálfvirka villuprófun á slíkum skráningum, sem leiðir meðal annars í ljós hvort kennitölur eru réttar, nöfn stemma við Þjóðskrá og hvort áskrifendur eru á lokuðum lista.
Hluthafalistar og kaupréttur
Útboðsaðilar hafa kost á því að skilgreina sérstaka kaupréttarlista yfir einstaklinga, gjarnan hluthafa, sem hafa forgang (kauprétt) í útboð.
Þeir hafa þá ákveðinn frest til þess að tryggja sér hluti á undan öðrum kaupendum. Hinir sömu geta framselt rétt sinn til annarra hyggist þeir ekki nýta hann.
Helstu kostir IPO:
- IPO.is skalast sjálfkrafa þegar vefumferð er mikil.
- Enga forritun þarf til að setja upp ný útboð.
- Styður margar tegundir af útboðum.
- Einfalt og sveigjanlegt í notkun.
- Styður við tilhlýðileikamat ef þarf.
- Fullkominn rekjanleiki allra aðgerða.
IPO.is hefur verið í þróun í nokkur ár og komin góð reynsla á notkun kerfisins. Mörg af stærstu útboðum síðustu ára á Íslandi hafa farið í gegnum IPO.is .
Fyrir hverja er IPO?
Fyrir fjármála- og einkafyrirtæki sem vilja safna áskriftum í opin eða lokuð útboð.
Fáðu kynningu á kerfinu
Sérfræðingar Kóða eru tilbúnir að kynna kerfið betur fyrir þér. Hafðu samband og pantaðu kynningu.
Hafðu samband