Mat á hæfi og tilhlýðileika viðskiptavina með KODIAK MiFID II.

Nákvæm saga, niðurstöður mats og rekjanleiki skráninga

Nýlegar breytingar á Evrópureglugerð (MiFID II) er ætlað að auka gagnsæi í viðskiptum og skerpa á fjárfestavitund. 

MiFID II gerir auknar kröfur til verðbréfafyrirtækja til mats á því hvort vara eða þjónusta sé tilhlýðileg fyrir viðskiptavini. 

KODIAK MiFID II metur nákvæmlega flokkun viðskiptavina fjármálafyrirtækja hvað varðar tilhlýðileika og hæfi, og leggur til vörur sem hæfa hverjum og einum. 

 

Einstaklingar og lögaðilar

Í KODIAK MiFID II eru viðskiptavinir skilgreindir ýmist sem einstaklingar eða lögaðilar, sem geta verið almennir fjárfestar eða fagfjárfestar. 

Lögaðilar geta að auki verið viðurkenndir gagnaðilar.

 

Tilhlýðileika- og hæfismat

KODIAK MiFID II heldur utan um spurningalista fyrir tilhlýðileikamat og hæfismat, sem er forsenda flokkunar á viðskiptavinum.

Í tilhlýðileikamati er þekking og reynsla viðskiptavinar metin. Í hæfismati er hins vegar lagt mat á fjárhagslega stöðu, markmið, áhættusækni og fjárfestingartíma viðskiptavinar.

Matið birtist í skýrslu sem sýnir hvaða vöruflokkar hæfa viðskiptavini miðað við þekkingu hans og reynslu. 

 

Allar aðgerðir rekjanlegar

KODIAK MiFID II skráir nákvæmlega breytingasögu viðskiptavinar frá fyrstu skráningu, til dæmis spurningalista vegna nýs mats á hæfi, uppfærslur á flokkum og breytingar á samningum.

 

Umboðsmenn

Fyrir lögaðila þarf að skilgreina umboðsmenn, sem svara spurningalistum fyrir hans hönd í kerfinu. Einstaklingur getur verið umboðsmaður fyrir fleiri

en einn lögaðila.

 

Helstu kostir KODIAK MiFID II:

  • Ítarlegt mat á tilhlýðileika og hæfi viðskiptavina verndar viðskiptavini og tryggir hlítni við lög.
  • Allar aðgerðir og breytingar eru vandlega skráðar og rekjanlegar ef þörf er á.
  • Bætt þjónusta við viðskiptavini með betri ráðgjöf um fjárfestingakosti.
  • Öruggar API tengingar við netbanka og önnur kerfi tryggir hnökralausa virkni.

 

Fyrir hverja er KODIAK MiFID II?

Fjármálafyrirtæki, eignastýringu, fjárfestingaráðgjöf, miðlun, framlínustarfsfólk, bakvinnslu og regluvörslu.

Hafðu samband

Hefur þú einhverjar spurningar um KODIAK MiFID II kerfið eða vilt fá kynningu frá sérfræðingum Kóða?

Hafðu samband

Helstu eiginleikar KODIAK MiFid II

Vörur við hæfi

Kerfið leggur til vörur sem hæfa hverjum viðskiptavini samkvæmt hæfismati.

Hæfisflokkun

Flokkun viðskiptavina í viðeigandi hæfisflokka samkvæmt MiFID II - allar breytingar eru .

Samningar

Kerfið heldur utan um samninga viðskiptavina og allar uppfærslur á þeim.

Lögaðilar

Kerfið gerir greinarmun á lögaðilum og einstaklingum.

Sveigjanlegir spurningalistar

Hægt er að halda utan um hvers kyns spurningalista (t.d. AML spurningalista).

Matsskýrslur

Svör í hæfi- og tilhlýðileikamati eru birt í skýrslu, þar sem einnig mælt með vörum við hæfi.

Saga og rekjanleiki

Kerfið heldur utan um MiFID sögu viðskiptavina og allar aðgerðir eru skráðar og rekjanlegar ef til úttektar kemur.

API tenging

Kerfið tengist netbönkum og öðrum kerfum með öruggum API tengingum.

Ertu með fyrirspurn vegna KODIAK MiFID II?

Skráðu nafn, netfang og veldu tegund fyrirspurnar. Við höfum samband til baka eins fljótt og við getum.

Name(Required)
This field is for validation purposes and should be left unchanged.