Notkunarskilmálar fyrir KODIAK Pro
KODIAK Pro er hugbúnaðarlausn fyrir Windows stýrikerfi sem veitir notendum aðgang að lifandi markaðsgögnum og reiknivélum í rauntíma. Með notkun KODIAK Pro samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
1. Notkunarleyfi
Notendum er veitt takmarkað, óframseljanlegt leyfi til að nota KODIAK Pro í samræmi við skilmála þessa.
Leyfið heimilar ekki:
- Endursölu eða dreifingu þjónustunnar.
- Breytingar eða afleidd verk byggð á efni eða virkni KODIAK Pro.
- Afkóðun, niðurbrot (reverse engineering) eða sambærilega íhlutun í undirliggjandi virkni hugbúnaðarins.
2. Áskrift og greiðslur
KODIAK Pro er í boði í mismunandi áskriftarleiðum, eftir þörfum og eðli notkunar. Nánari upplýsingar um verð og áskriftarleiðir má nálgast á vefsíðu Kóða.
Greiðslur fyrir áskriftir eru óendurkræfar nema annað sé sérstaklega tekið fram. Notendur geta sagt upp áskrift að KODIAK Pro hvenær sem er með tveggja mánaða uppsagnarfresti, sem hefst næstu mánaðamót eftir tilkynningu.
3. Gögn frá þriðja aðila
KODIAK Pro veitir aðgang að gögnum frá þriðju aðilum, svo sem Nasdaq OMX Nordic, Seðlabanka Íslands, Hagstofu Íslands og öðrum opinberum eða einkareknum gagnaveitum.
Kóði ehf. ber ekki ábyrgð á:
- Nákvæmni, heilleika eða framboði þessara gagna.
- Tímabundnum truflunum í aðgangi að gögnum.
- Breytingum sem þriðju aðilar kunna að gera án fyrirvara.
4. Takmörkun ábyrgðar
KODIAK Pro áskrift er veitt án beinnar eða óbeinnar ábyrgðar.
Kóði ehf. ber ekki ábyrgð á:
- Beinu eða óbeinu fjárhagslegu tjóni sem rekja má til notkunar á þjónustunni.
- Tjóni vegna tafar, kerfishruns, gagnataps eða rangra niðurstaðna fenginna úr kerfinu.
- Notkun eða túlkun notenda á niðurstöðum eða útreikningum innan kerfisins.
5. Persónuvernd
Við notkun KODIAK Pro kunna tilteknar upplýsingar um notendur að vera skráðar, svo sem tengingar tímar, innskráningar, aðgangsupplýsingar og fleira. Slíkt er unnið í samræmi við gildandi lög um persónuvernd. Persónuverndarstefnu Kóða fjallar nánar um ástæður gagnasöfnunar og hvernig slík gögn eru meðhöndluð.
6. Breytingar á skilmálum
Kóði ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Breytingar taka gildi við birtingu þeirra á vef Kóða. Notendum er ráðlagt að kynna sér skilmálana reglulega.
7. Lög og varnarþing
Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur vegna þeirra skal hann rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.