Hafðu puttann á púlsinum með ítarlegum markaðsgögnum frá Nasdaq OMX.

Fyrir fagfólk á fjármálamarkaði

Markaðsgögn í rauntíma

Aðgengi að réttum og nákvæmum markaðsupplýsingum er forsenda þess að taka upplýstar og vandaðar ákvarðanir á fjármálamarkaði.

KODIAK Pro er háþróuð hugbúnaðarlausn fyrir Windows stýrikerfið sem streymir ítarlegum rauntíma- og sögulegum markaðsgögnum frá Nasdaq OMX kauphöllinni beint í þína tölvu.

Með KODIAK Pro hafa fjárfestar heildarsýn yfir öll viðskipti með hlutabréf og skuldabréf á norrænum markaði.

 

Helstu kostir KODIAK Pro
  • Einföld uppsetning , allt sem þarf er nettenging.
  • Sveigjanlegt og einfalt viðmót sem þú getur lagað að þínum þörfum.
  • Fjölbreyttir eiginleikar og aðgerðir í boði með nákvæmum markaðsupplýsingum í rauntíma.
  • Sérsniðnir vöktunarlistar gefa þér nákvæmlega þær upplýsingar sem þú þarft hverju sinni.
  • Hagkvæmur kostur miðað við sambærilegan hugbúnað.
  • Sjálfvirkar uppfærslur.
  • Einfalt að tengja gögn við Excel með RTD.

 

Sjá lista yfir gögn í KODIAK Pro og berðu saman vörur í flokki markaðsgagna og greiningartóla.

 

Fyrir hverja er KODIAK Pro?

KODIAK Pro er ætlað sérfræðingum fjármálafyrirtækja, tryggingafélaga, verðbréfasjóða, rekstraraðila sjóða, lífeyrissjóða sem og fjárfestatenglum skráðra fyrirtækja og annarra fjárfesta.

KODIAK Pro er hagkvæm lausn fyrir kröfuharða sérfræðinga sem er sérsniðin að íslenskum markaði.

Prófaðu frítt í 2 vikur

Sæktu nýjustu útgáfu af KODIAK Pro og hafðu samband til að fá frían prufuaðgang í 2 vikur áður en þú ákveður að koma í áskrift.

Prófaðu frítt

Dæmi um virkni í KODIAK Pro

Lifandi markaðsgögn

Fáðu upplýsingar um nýjustu viðskipti í Nasdaq OMX um leið og þau gerast.

Söguleg viðskipti

Skoðaðu verðþróun hluta- og skuldabréfa með einföldum og myndrænum hætti. Flettu upp sögulegum viðskiptum í Kauphöll Íslands á einum stað.

Reiknivél skuldabréfa

Reiknaðu verðmæti íslenskra skuldabréfa og greiðsluflæði þeirra. Reiknivél okkar styður öll skuldabréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands.

Gagnastreymi í Excel

Tengdu gagnastreymi á auðveldan hátt inn í eigin Excel skjöl með Excel RTD.

Dagslokaverð

Fáðu upplýsingar um opinbert dagslokaverð í Kauphöll Íslands með einfaldri leit.

DMA

Sendu pantanir beint á markað í gegnum fjármálafyrirtæki.

Nákvæmar upplýsingar

Fáðu nákvæmar upplýsingar um öll skráð skuldabréf og hlutabréf.

KODIAK Pro áskriftarleiðir

Fyrir fagaðila

15.900 kr. á mánuði + vsk.

Velja þarf eina eða fleiri áskriftarleiðir að markaðsgögnum í rauntíma. Verðin eru samkvæmt gjaldskrá Nasdaq OMX fyrir aðgang fyrirtækja að rauntímagögnum.

Áskriftarleiðir að markaðsgögnum

  • Leið 1: Hlutabréf – Hagstæðasta kaup og sölutilboð

    58 €

  • Leið 2: Hlutabréf – Hagstæðustu 5 kaup og sölutilboð

    98 €

  • Leið 3: Hlutabréf – Öll kaup og sölutilboð

    125 €

  • Leið 4: Skuldabréf – Öll kaup og sölutilboð

    85 €

Fyrir almenna fjárfesta

15.900 kr. á mánuði + vsk.

Velja þarf eina áskriftarleið að markaðsgögnum í rauntíma.

Verðin eru samkvæmt gjaldskrá Nasdaq OMX fyrir aðgang einstaklinga að rauntímagögnum.

Áskriftarleiðir að markaðsgögnum

  • Leið 1: Hlutabréf og skuldabréf – Hagstæðasta kaup og sölutilboð

    2 €

  • Leið 2: Hlutabréf og skuldabréf – Hagstæðustu 5 kaup og sölutilboð


    10 €

  • Leið 3: Hlutabréf og skuldabréf – Öll kaup og sölutilboð


    16 €

Hafðu samband

Ertu með spurningu eða viltu nánari upplýsingar um KODIAK Pro? Sérfræðingar Kóða taka vel á móti öllum fyrirspurnum.

Athugið að nauðsynlegt er að fylla út stjörnumerkta reiti.

This field is for validation purposes and should be left unchanged.

Fleiri spennandi lausnir

  • Gagnatorg API

    Markaðsgögn í vefþjónustur

    Sæktu markaðsgögn ásamt að geta tengt eigin hugbúnaðarlausnir við Gagnatorgs API.

    skoða nánar
  • Keldan

    Upplýsingaveita atvinnulífsins

    Keldan veitir aðgang að öllum helstu skrám sem reknar eru af opinberum aðilum á Íslandi.

    skoða nánar
  • Keldan App

    Markaðsgögn fyrir Android og IOS

    Fylgstu með gengi hlutabréfa, gjaldmiðla og viðskiptafrétta í appinu í rauntíma.

    skoða nánar
  • KODIAK Excel

    Markaðsgögn beint í Excel

    Náðu hámarksárangri með greiningu markaðsgagna í Microsoft Excel með KODIAK Excel viðbótinni.

    skoða nánar