Greining markaðsgagna í rauntíma með KODIAK Sheets í gegnum Google Docs Spreadsheets.

Einfaldari greiningarvinna í vafra

Lifandi markaðsgögn með KODIAK Sheets

KODIAK Sheets er viðbót undan KODIAK Excel sem gerir þér kleift að vinna allar mikilvægustu markaðsupplýsingar í rauntíma í Google Docs spreadsheets.

 

Helstu kostir KODIAK Sheets
  • Einfaldur aðgangur allra gagnapakka sem Kóði safnar.
  • Öll fjárhagsgögn á einum stað með tengingu gagnastrauma úr eigin kerfum með Genius hugbúnaði.
  • Áskrift að fjármálaþjónustum: Markaðsgögn frá Nasdaq OMX Nordic, skuldabréf, gjaldmiðlar, reiknivélar og fleira.

 

Fyrir hverja er KODIAK Sheets?

KODIAK Sheets er ætlað öllum þeim sem greina markaðsupplýsingar á fjármálamarkaði, svo sem sérfræðingum fjármálafyrirtækja, tryggingafélaga og verðbréfasjóða.

KODIAK Sheets er góð lausn fyrir hvern sérfræðing sem vinnur með markaðsgögn frá norrænum mörkuðum.

 

Hér má finna upplýsingar um allar þjónustur í KODIAK Sheets.

Hafðu samband

Ertu með spurningu eða viltu nánari upplýsingar um KODIAK Sheets? Sérfræðingar Kóða taka vel á móti öllum fyrirspurnum.

Hafðu samband

Fjölbreyttir gagnapakkar í KODIAK Sheets

Hlutabréf

Tenging við Nasdaq OMX Nordic veitir meðal annars upplýsingar um hlutabréfavísitölur, söguleg og rauntímaviðskipti, samantekt á viðskiptum og dagslokaverð.

Skuldabréf

Fáðu öll nauðsynleg gögn til að halda utan um skuldabréfasafnið, svo sem föll og runur fyrir vísitölur, útreikning á ávöxtunarkröfu, aðgang að rauntímaviðskiptum í OMX Nordic Exchange og margt fleira.

Gjaldmiðlar og vextir

Sæktu gengi, gjaldmiðlakrossa og vexti frá Seðlabanka Íslands og öðrum birgjum.

Reiknivélar

Reiknaðu lánið til enda; greiðsluflæði, heildarafborganir, verðtryggingu og hlutfallstölu kostnaðar. Reiknaðu einnig verð á valréttum hlutabréfa og ávöxtunarkröfu, núvirði og binditíma skuldabréfa.

Íslenskar gagnaveitur

Greining gagna frá ýmsum gagnaveitum meðal annars frá Seðlabanka Íslands, Hagstofunni, Verðbréfaskráningu Íslands og Rannsóknasetri verslunarinnar.

Vísitölur og verðbréfasjóðir

Fylgstu með hluta- og skuldabréfavísitölum Nasdaq sem og gengi verðbréfasjóða hjá íslenskum rekstrarfélögum.

Fjárhagsupplýsingar úr ársreikningum

Fjárhagsupplýsingar hjá skráðum og óskráðum fyrirtækjum á Íslandi.

Fleiri spennandi lausnir

  • Genius hugbúnaður

    Kerfið sem getur allt

    Genius nútímavæðir gagnavinnslu með vefþjónustum.

    skoða nánar
  • Keldan App

    Markaðsgögn fyrir Android og IOS

    Fylgstu með gengi hlutabréfa, gjaldmiðla og viðskiptafrétta í appinu í rauntíma.

    skoða nánar
  • KODIAK Pro

    Markaðsgögn fyrir Windows

    Fáðu rauntíma markaðsgögn frá Nasdaq OMX, söguleg verð, gröf, yfirlit yfir sjóði, gjaldmiðla og margt fleira.

    skoða nánar
  • Keldan

    Upplýsingaveita atvinnulífsins

    Keldan veitir aðgang að öllum helstu skrám sem reknar eru af opinberum aðilum á Íslandi.

    skoða nánar