Deila

Keldan KYC: Skilvirkt kerfi fyrir áreiðanleikakannanir og áhættumat

Keldan hefur sett í loftið nýtt og betrumbætt KYC kerfi til utanumhalds og framkvæmdar áreiðanleikakannana. Kerfið er í senn einfalt og skilvirkt og stenst þau lög sem tilkynningarskyldir aðilar falla undir um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Góð heildstæð yfirsýn á viðskiptavinum
  • Áreiðanleikakannanir á lögaðilum og einstaklingum.
  • Áreiðanleikakannanir á erlendum aðilum.
  • Gildandi skráning með raunverulegum eigendum, sótt sjálfkrafa frá Hlutafélagaskrá.
  • Sjálfvirk leit á íslenskum PEP lista Keldunnar.
  • Sjálfvirk leit á móti alþjóðlegum válistum.
  • Ríkisfang einstaklinga keyrt á móti áhættu- og ósamvinnuþýðum ríkjum.
  • Spurningalisti sendur út og svör við spurningalista móttekin.
  • Rafræn auðkenning viðskiptavina.
  • Skráning áhættumats handvirkt eða sjálfvirkt.
  • Skjöl hengd við hverja áreiðanleikakönnun (aukin áreiðanleikakönnun).
  • Sjálfvirk áminning þegar ákveðinn tími er liðinn frá síðustu könnun.
  • Viðvarandi eftirlit með stöðu viðskiptavina.
Skjáskot úr Keldan KYC:


Kerfið gerir notendum kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á einfaldan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum, lögaðilum og einstaklingum. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.

Hafðu samband ef þú vilt fá aðgang að Keldan KYC eða til að panta kynningu á kerfinu.

Deila