Gefðu gervigreindinni aðgang að íslenskum markaðsgögnum. Tengdu Claude, ChatGPT og Copilot við KODIAK MCP.

Notaðu gervigreind til að greina gögn

KODIAK MCP gerir íslensk markaðsgögn aðgengileg fyrir gervigreindina. KODIAK MCP veitir aðgang að upplýsingum um hlutabréf, skuldabréf, vísitölur, vexti, gjaldmiðla, hagtölur, sjóði, tilkynningar, markaði og fjárhagsupplýsingar íslenskra fyrirtækja.

 

Helstu kostir KODIAK MCP
  • Talaðu við gervigreindina á íslensku, hún skilur öll félagaheiti, kennitölur og auðkenni.
  • Sömu gagnapakkar og í KODIAK Excel: Fjármálaþjónustur, Questor og Financials, með sömu réttindum.
  • Engin uppsetning, aðeins innskráning.

 

Fyrir hverja er KODIAK MCP?

Greinendur, sjóðstjóra, áhættustýringu, fyrirtækjaráðgjafa, endurskoðendur og lögmenn sem vinna með íslensk markaðs- og fyrirtækjagögn og eru þegar að nýta sér gervigreind.

Prófaðu frítt í eina viku

Hafðu samband til að fá prufuaðgang í eina viku áður en þú ákveður að koma í áskrift.

Prófaðu frítt

Fjölbreyttir gagnapakkar í KODIAK MCP

Hlutabréf

Seinkuð gögn frá Nasdaq Nordic, dagslokaverð, leiðrétt verðsaga, viðskipti, miðlaratölfræði, skortstöður, arðgreiðslur og upplýsingar um hluthafa.

Skuldabréf

Ávöxtunarkrafa, verð, binditími, DV01, greiðsluflæði, skuldabréfavísitölur, vaxtaferill ríkisbréfa og nýskráningar.

Gjaldmiðlar og vextir

Gengi og krossgengi Seðlabanka Íslands, stundargengi, stýrivextir, REIBOR, erlendir millibankavextir og vextir á vaxtaskiptasamningum.

Vísitölur og sjóðir

Hluta- og skuldabréfavísitölur Nasdaq ásamt gengi og ávöxtun íslenskra verðbréfasjóða og séreignarsjóða frá 1986.

Íslenskar gagnaveitur

Hagtölur frá Hagstofu Íslands, svo sem vísitala neysluverðs, verðtrygging og hagvöxtur, ásamt kauphallartilkynningum og fjárhagsdagatali.

Fjárhags-upplýsingar úr ársreikningum

Questor: skráð félög, 740 liðir sem uppfærast innan klukkustundar frá birtingu uppgjörs. Financials: um 58.000 óskráð félög frá 2002, listar yfir fyrirtæki, eigendur og upplýsingar úr fyrirtækjaskrá.

Áskriftarleiðir

Tenging við KODIAK MCP

10.900 kr. á mánuði + vsk

Tenging við:

  • Claude
  • ChatGPT
  • Copilot

Gagnapakkar í áskrift

Fjármálaþjónustur*

23.000 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • Hlutabréf
  • Skuldabréf
  • Gjaldmiðlar
  • Íslenskar gagnaveitur (Hagstofan, sjóðir, verðbréfaskráning)
  • Ýmis reikniverk
  • Stuðningsþjónustur
Questor

20.890 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • Árhlutareikningar
  • Ársreikningar
  • Kennitölur og aðrar lykilupplýsingar
Financials

46.900 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • Ársreikningar
  • Listar yfir fyrirtæki
  • Kennitölur og aðrar lykilupplýsingar
* Til að nýta sér rauntímagögn frá NASDAQ Nordic þarf notandi að vera með áskrift að markaðsgögnum.

Hafðu samband

Ertu með spurningu eða viltu nánari upplýsingar um KODIAK MCP? Sérfræðingar Kóða taka vel á móti öllum fyrirspurnum.

Athugið að nauðsynlegt er að fylla út stjörnumerkta reiti.

This field is for validation purposes and should be left unchanged.

Fleiri spennandi lausnir

  • KODIAK Excel

    Markaðsgögn beint í Excel

    Náðu hámarksárangri með greiningu markaðsgagna í Microsoft Excel með KODIAK Excel viðbótinni.

    skoða nánar
  • Gagnatorg API

    Markaðsgögn í vefþjónustur

    Sæktu markaðsgögn ásamt að geta tengt eigin hugbúnaðarlausnir við Gagnatorgs API.

    skoða nánar
  • Keldan markaðir

    Markaðsgögn fyrir Android og IOS

    Fylgstu með gengi hlutabréfa, gjaldmiðla og viðskiptafrétta í rauntíma.

    skoða nánar
  • KODIAK Pro

    Markaðsgögn fyrir Windows

    Fáðu rauntíma markaðsgögn frá Nasdaq OMX, söguleg verð, gröf, yfirlit yfir sjóði, gjaldmiðla og margt fleira.

    skoða nánar