Deila

Kóði og Keldan auglýsa eftir vörustjóra

Hefur þú áhuga á fjármálamörkuðum og vilt móta vörur sem fjármálafyrirtæki, fjárfestar og stofnanir nota á hverjum degi?

Kóði leitar að öflugum vörustjóra. Hann ber ábyrgð á þróun og framgangi tiltekinna vara í vöruframboði Kóða og Keldunnar. Vörustjórinn vinnur náið með forriturum, viðskiptavinum og stjórnendum. Hann heldur utan um forgangsröðun og samskipti, frá hugmynd að útgáfu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á forgangsröðun og framgangi varanna
  • Skipulag og stjórnun þróunarvinnu í sprettum í samstarfi við forritara
  • Samskipti við viðskiptavini, greining á þörfum þeirra og eftirfylgni
  • Skilgreining á nýjum eiginleikum og lausnum
  • Áætlanagerð og eftirfylgni með verkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tækni, verkfræði, viðskipta eða fjármála
  • Brennandi áhugi á fjármálum og fjármálamörkuðum
  • Reynsla af vinnu í sprettum (Scrum/Agile) kostur
  • Reynsla af samskiptum við kröfuharða viðskiptavini
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og góð samskiptafærni
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, töluðu og rituðu máli
  • Áhugi á að nýta gervigreind í daglegu starfi

Um vinnustaðinn

Hugbúnaðarfyrirtækið Kóði ehf. er sérhæft fyrirtæki á sviði verðbréfaviðskipta og lausna fyrir fjármálaheiminn. Meðal viðskiptavina Kóða eru öll helstu fjármálafyrirtæki Íslands.

Kóði var stofnað í janúar 2009. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 30 starfsmenn. Síðustu ár hefur Kóði verið áberandi fyrirtæki í nýsköpun á sviði fjármálalausna með lausnir eins og keldan.is, Keldan app, hluthafaskra.is, Kodiak fjármálakerfi, livemarketdata.com, ipo.is, o.fl.

Deila