Deila

Er þitt fyrirtæki til fyrirmyndar í rekstri?

Keldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstrarári yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri. Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði til að falla í þennan eftirsóknaverða hóp fyrirtækja.

Rekstrarárin 2024 og 2023 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins þar á undan. Þá eru aðrir þættir einnig metnir af Keldunni og Viðskiptablaðinu, til að mynda skil á ársreikningi og rekstrarform.

  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.

Á vefsíðu Keldunnar undir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er að finna leitarvél þar sem hægt er að fletta upp kennitölu fyrirtækis og sjá hvort það sé á lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki 2025.

Þar má jafnframt panta vottun fyrir þitt fyrirtæki ef það uppfyllir ofangreind skilyrði.

Meðal þess sem í boði er fyrir fyrirtæki sem eru á listanum:

  • Viðurkenningarskjal á íslensku og ensku.
  • Leyfi til að nota merkið í kynningarefni.
  • Heildarlisti yfir fyrirmyndarfyrirtæki 2025 og lykiltölur.

Innslegnar lykiltölur úr ársreikningum fyrirtækja eru aðgengilegar áskrifendum Keldunnar. Fyrirtæki og einstaklingar geta þannig fengið aðgang að víðtækum og ítarlegum fjárhagsupplýsingum um fyrirtæki til að taka upplýstar ákvarðanir.

Deila