Kóði kaupir Stóra Neyðarkallinn 2026
Kóði hefur keypt Stóra Neyðarkallinn 2026 og styður þannig, eins og undanfarin ár, við starf björgunarsveita og slysavarnadeilda um allt land.
Neyðarkallinn er ein mikilvægasta fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ágóðinn rennur til sveitanna og nýtist meðal annars í búnað og þjálfun. Á bak við hvert útkall eru sjálfboðaliðar sem leggja frá sér vinnu og fjölskyldu til að koma öðrum til hjálpar, og það er okkur ljúft að leggja þeim lið.
Við hvetjum alla til að taka vel á móti sölufólki Neyðarkallsins þegar það verður á vegi ykkar.