Deila

Kóði og Keldan auglýsa eftir vörustjóra

Hefur þú áhuga á fjármálamörkuðum og vilt móta vörur sem fjármálafyrirtæki, fjárfestar og stofnanir nota á hverjum degi?

Kóði leitar að öflugum vörustjóra. Hann ber ábyrgð á þróun og framgangi tiltekinna vara í vöruframboði Kóða og Keldunnar. Vörustjórinn vinnur náið með forriturum, viðskiptavinum og stjórnendum. Hann heldur utan um forgangsröðun og samskipti, frá hugmynd að útgáfu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á forgangsröðun og framgangi varanna.
  • Skipulag og stjórnun þróunarvinnu í sprettum í samstarfi við forritara.
  • Samskipti við viðskiptavini, greining á þörfum þeirra og eftirfylgni.
  • Skilgreining á nýjum eiginleikum og lausnum.
  • Áætlanagerð og eftirfylgni með verkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði tækni, verkfræði, viðskipta eða fjármála.
  • Brennandi áhugi á fjármálum og fjármálamörkuðum.
  • Reynsla af vinnu í sprettum (Scrum/Agile) kostur.
  • Reynsla af samskiptum við kröfuharða viðskiptavini.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og góð samskiptafærni.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, töluðu og rituðu máli.
  • Áhugi á að nýta gervigreind í daglegu starfi.

Um vinnustaðinn

Hugbúnaðarfyrirtækið Kóði ehf. er sérhæft fyrirtæki á sviði verðbréfaviðskipta og lausna fyrir fjármálaheiminn. Meðal viðskiptavina Kóða eru öll helstu fjármálafyrirtæki Íslands.

Kóði var stofnað í janúar 2009. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 30 starfsmenn. Síðustu ár hefur Kóði verið áberandi fyrirtæki í nýsköpun á sviði fjármálalausna með lausnir eins og Keldan.is, Keldan app, Hluthafaskra.is, KODIAK fjármálakerfi, Livemarketdata.com, IPO.is og fleiri.

Deila