Deila

Opið fyrir skil á hlutfjármiðum til RSK

Opnað hefur verið fyrir félög að skila inn hlutafjármiðum til skattyfirvalda fyrir nýliðið ár, en skilatímabil hlutafjármiða er 1.-20. janúar 2024.

Hluthafaskra.is býður fyrirtækjum og þjónustuaðilum að skila hlutafjármiðum í kerfinu beint til RSK á einfaldan og skilvirkan hátt. Kerfið býr til hlutafjármiða út frá hluthafaskrá félagsins og arðgreiðslum í lok tekjuársins.

Ef utanumhald er rétt og færslur uppfærðar við lok árs geta þjónustuaðilar skilað inn hlutafjármiðum allra viðskiptavina í einu, beint til RSK

Frekari leiðbeiningar má finna í notendahandbókum um skil á hlutafjármiðum, fyrir stakt fyrirtæki eða þjónustuaðila margra fyrirtækja.

Einnig má hafa samband á [email protected].

Deila