Notkunarskilmálar fyrir KODIAK Excel

KODIAK Excel er viðbót fyrir Microsoft Excel sem gerir notendum kleift að sækja lifandi markaðsgögn beint inn í Excel skjöl sín. Með notkun KODIAK Excel samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

KODIAK Excel er viðbót fyrir Microsoft Excel sem gerir notendum kleift að sækja markaðsgögn beint inn í Excel skjöl. Með notkun KODIAK Excel samþykkir notandi eftirfarandi skilmála.

1. Notkunarleyfi

Notendum er veitt takmarkað, óframseljanlegt leyfi til að nota KODIAK Excel í samræmi við skilmála þessa. Leyfið heimilar ekki:

  • Endursölu eða dreifingu hugbúnaðarins.
  • Breytingar eða afleidd verk byggð á hugbúnaðinum.
  • Afkóðun hugbúnaðarins (reverse engineering).

2. Notendaaðgangur

Hver áskrift er bundin við einn nafngreindan notanda. Óheimilt er að deila innskráningu með öðrum eða nota sama aðgang á fleiri en einu tæki samtímis. Notandi ber ábyrgð á allri notkun sem fer fram undir hans aðgangi.

3.  Áskrift, flokkun notenda og greiðslur

KODIAK Excel er í boði í nokkrum áskriftarleiðum. Nánari upplýsingar um áskriftir og verð eru á vefsíðu Kóða. Greiðslur fyrir áskriftir eru óendurkræfar nema annað sé tekið fram.

Verð fyrir markaðsgögn fer eftir því hvort notandi er almennur fjárfestir eða fagaðili, samkvæmt reglum kauphallar. Lögaðilar teljast fagaðilar. Notandi skal veita réttar upplýsingar um flokkun sína og tilkynna Kóða ef hún breytist. Kóði getur endurflokkað notanda og innheimt mismun í samræmi við verðskrá ef flokkun reynist röng.

Notandi getur sagt upp áskrift hvenær sem er, með tveggja mánaða uppsagnarfresti sem hefst næstu mánaðamót eftir tilkynningu.

4. Notkun gagna

Gögn sem sótt eru með KODIAK Excel eru eingöngu til innri nota notanda. Án skriflegs samþykkis Kóða er óheimilt að:

  • birta gögnin opinberlega, til dæmis á vef, í fréttabréfum eða á samfélagsmiðlum,
  • dreifa gögnunum eða Excel-skjölum sem innihalda þau til þriðja aðila,
  • endurselja gögnin eða nota þau í vöru eða þjónustu fyrir aðra,
  • nota gögnin í sjálfvirkri vinnslu án birtingar á skjá (e. non-display use), svo sem í algrímum, viðskiptakerfum eða til að þjálfa gervigreind. Slík notkun krefst sérstaks leyfis samkvæmt reglum kauphallar.

Takmarkað magn gagna má nota í innri skýrslum og greiningum, enda sé uppruna þeirra getið.

5. Eðlileg notkun og sjálfvirkar fyrirspurnir

KODIAK Excel er ætlað til notkunar í Excel, þar sem notandi sækir og uppfærir gögn í eigin skjölum. Óheimilt er að:

  • nota forrit, skriftur, vélmenni (e. bots), gervigreind eða aðra sjálfvirkni til að senda fyrirspurnir í þjónustuna umfram eðlilega notkun,
  • sækja gögn í heild eða í miklu magni í þeim tilgangi að afrita gagnagrunn Kóða,
  • nota KODIAK Excel sem milliliði til að veita öðrum kerfum aðgang að gögnum.

Hámark fyrirspurna er 1.000 á mínútu og 250.000 á sólarhring á hvern notanda, nema um annað sé samið. Fyrir sjálfvirka notkun, tengingu við önnur kerfi eða gervigreind býður Kóði upp á KODIAK MCP og Gagnatorg API.

6. Viðbrögð við misnotkun

Ef notkun brýtur gegn skilmálum þessum, eða ógnar stöðugleika þjónustunnar fyrir aðra notendur, getur Kóði án fyrirvara:

  • takmarkað fjölda fyrirspurna eða hægt á þeim,
  • lokað aðgangi tímabundið eða varanlega,
  • innheimt fyrir umframnotkun samkvæmt verðskrá, eða sem áskrift að þeirri þjónustu sem við á.

Kóði tilkynnir notanda um aðgerðir eins fljótt og auðið er. Lokun aðgangs vegna brots á skilmálum veitir ekki rétt til endurgreiðslu.

7. Gögn frá þriðja aðila

KODIAK Excel veitir aðgang að gögnum frá þriðja aðila, svo sem Nasdaq Iceland og öðrum kauphöllum Nasdaq og Seðlabanka Íslands. Um notkun gagnanna gilda einnig skilmálar viðkomandi gagnaveitu. Kóði ber ekki ábyrgð á áreiðanleika eða framboði þessara gagna.

8. Takmörkun ábyrgðar

Aðgangur að KODIAK Excel er veittur eins og hann er, án ábyrgðar á að þjónustan sé ávallt aðgengileg eða villulaus. Kóði ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun hugbúnaðarins eða gagnanna, nema tjónið megi rekja til stórfellds gáleysis eða ásetnings Kóða.

9. Persónuvernd og skráning notkunar

Við notkun KODIAK Excel eru persónuupplýsingar og upplýsingar um notkun skráðar í samræmi við gildandi reglur um persónuvernd. Kóða er skylt að gera gagnaveitum grein fyrir fjölda notenda og notkun, og fylgist því með fjölda fyrirspurna. Persónuverndarstefna Kóða fjallar nánar um ástæður gagnasöfnunar og hvernig slík gögn eru meðhöndluð.

10. Breytingar á skilmálum

Kóði áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar á vefsíðu Kóða, og bera notendur ábyrgð á að kynna sér skilmálana reglulega. Haldi notandi áfram notkun eftir birtingu teljast breytingarnar samþykktar.

11. Lög og varnarþing

Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur vegna þeirra skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.