Deila

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022 er komið út

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er blað sem Keldan og Viðskiptablaðið gefa út árlega til heiðurs fyrirtækjum með sterkan rekstur. Auk lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki eru í blaðinu fjölmörg viðtöl, greiningar og fróðlegt talnaefni.

Fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin í ár telja 1.170, en voru 1.019 í fyrra. Fjölgun má að öllum líkindum rekja til batnandi stöðu fyrirtækja eftir heimsfaraldur, þá sérstaklega í ferðaþjónustunni.

Rekstrarárin 2021 og 2020 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2019. Þá eru aðrir þættir einnig metnir af Keldunni og Viðskiptablaðinu, til að mynda skil á ársreikningi og rekstrarform.

  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%

Blaðið er opið öllum og hér má nálgast pdf-útgáfuna.

Hægt er að skoða listann í heild sinni og panta vottun á vef Keldunnar.

Kóði og Keldan óska öllum fyrirmyndarfyrirtækjum 2022 til hamingju með áfangann!

Deila