Deila

KODIAK MCP: íslensk markaðsgögn beint í gervigreindina

Kóði kynnir KODIAK MCP, nýja tengingu sem færir íslensk markaðsgögn beint inn í gervigreindina sem þú notar. Með KODIAK MCP geta Claude, ChatGPT og Copilot sótt upplýsingar um hlutabréf, skuldabréf, vísitölur, vexti, gjaldmiðla, hagtölur, sjóði, fréttatilkynningar og fjárhagsupplýsingar íslenskra fyrirtækja.

Gervigreind er orðin hluti af daglegu starfi margra sem vinna með fjármál og fyrirtækjagögn. Það sem hefur vantað er aðgangur að áreiðanlegum íslenskum gögnum. KODIAK MCP brúar það bil.

Spurðu á mannamáli

Þú þarft hvorki að kunna auðkenni né formföst fyrirspurnarmál. Gervigreindin skilur öll félagaheiti, kennitölur og auðkenni og sækir gögnin úr KODIAK MCP þegar þú spyrð. Dæmi um spurningar:

  • „Hvernig hefur ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa þróast á árinu?“
  • „Berðu saman tekjur og EBITDA tveggja skráðra félaga síðustu fimm ár.“
  • „Hverjir eru stærstu hluthafar félagsins og hvernig hafa þeir breyst?“
  • „Hver var verðbólgan síðustu 12 mánuði og hvernig stóðu stýrivextir á sama tíma?“

Gögnin eru þau sömu og Kóði hefur miðlað til íslensks fjármálamarkaðar um árabil, svo gervigreindin vinnur með raunveruleg gögn en ekki ágiskanir.

Prófaðu frítt í eina viku

Við bjóðum vikulangan prófunaðgang svo þú getir séð hvernig KODIAK MCP nýtist þér áður en þú kemur í áskrift. Hafðu samband á vörusíðunni og við komum þér af stað. Leiðbeiningar um tengingu og notkunarskilmála má einnig finna á vörusíðunni.

Deila