Deila

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2023 er komið út

Blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri sem Keldan og Viðskiptablaðið gefa árlega út til heiðurs fyrirtækjum með sterkan rekstur er komið út! Í blaðinu er að finna áhugaverð viðtöl, greiningar, fróðlegt talnaefni, og að sjálfsögðu lista yfir öll fyrirmyndarfyrirtæki 2023.

Fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin í ár telja 1.407, en voru 1.170 í fyrra. Fjölgun milli ára má rekja til hagsældar í atvinnulífinu og batnandi stöðu fyrirtækja eftir heimsfaraldur.

Rekstrarárin 2022 og 2021 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2020. Þá eru aðrir þættir einnig metnir af Keldunni og Viðskiptablaðinu, til að mynda skil á ársreikningi og rekstrarform.

  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%

Blaðið er opið öllum og hér má nálgast pdf-útgáfuna.

Hægt er að skoða listann í heild sinni og panta vottun á vef Keldunnar.

Kóði og Keldan óska öllum fyrirmyndarfyrirtækjum 2023 til hamingju með áfangann!

Deila